Bali kjúklingapottréttur

Bali kjúklingapottréttur

600 g kjúklingur

1 tsk olía til steikingar

1 laukur

1 lauf hvítlaukur, rifinn

1 msk rifinn engifer

2 msk karríduft

1 tsk turmerik

1 tsk paprikuduft

klípa chiliflögur

1 kubbur kjúklingakraftur

1 dós létt kókosmjólk

200 ml matreiðslurjómi

1 rauð paprika

1 stór dós ananasbitar

1 grænt epli

salt og pipar

Steikið kjúklinginn upp úr olíu. Bætið lauk, hvítlauk og engifer saman við og eldið þar til laukurinn er glær.

Bætið karrídufti, túrmerik, paprikudufti og chiliflögum saman við og eldið í nokkrar mínútur.

Hrærið kjúklingakrafti, kókosmjólk og rjóma út í.

Skerið papriku, ananasbita og grænt epli í smáa bita og bætið út á pönnuna.

Kryddið með salti og pipar eftir smekk.

Látið malla þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og sósan hefur þykknað.