Bananakaka
3 egg
170 g sykur
2 tsk vanillusykur
125 g hveiti
1 tsk lyftiduft
100 g brætt og kælt smjör
1½ stappaður banani
Krem:
100 g brætt súkkulaði
Þeytið egg, sykur og vanillusykur saman. Blandið hveiti og lyftidufti saman, stappið bananana út í smjörið og blandið öllu saman.
Bakið við 160 °C í 50 mínútur.
Bræðið súkkulaði og dreifið ofan á kökuna og látið kólna.