Cornflakes kjúklingur
4 kjúklingabringur
30 g smjör eða smjörlíki
hvítlauksduft
lauksalt
svartur pipar
paprika
50 g cornflakes
Bræðið smjör í potti og bætið kryddum út í.
Veltið kjúklingnum upp úr smjörinu og síðan upp úr muldu cornflakes.
Setjið í eldfast mót eða á grind með bakka undir.
Stráið restinni af kornflögunum yfir og afgangssmjörinu úr pottinum.
Bakið í 30-40 mín við 200°C ef notaðir eru kjúklingabitar í stað bringu er eldunartíminn aðeins lengri (um 50 mín).