Fylltar jólabollur
100 g brætt smjör
375 ml mjólk
2 tsk þurrger
100 g sykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
600 g hveiti
1/2 tsk salt
1 tsk lyftiduft
Fylling:
250 ml nýmjólk
1 pakki Royal búðingsduft, vanillu
Hitið mjólkina þar til hún verður ylvolg eða um 37°C og bætið síðan við þurrgeri og sykri og látið standa í 10 mín.
Bætið við eggjum og vanilludropum ásamt þurrefnum og bræddu smjöri.
Hnoðið deigið vel saman og látið það síðan hefast í 30 mínútur.
Á meðan er hægt að blanda búðingsduftinu í mjólkina og leyfa blöndunni að þykkna. Geymið búðinginn í kæli þar til á að nota hann.
Skiptið deiginu í 20 hluta. Mótið flatar lófastórar kökur úr hverjum deighluta og setjið matskeið af þykkum búðing í miðju deigskífunnar. Klípið endana vel saman til að loka búðinginn alveg inni í deiginu.
Leggið bollurnar á bökunarplötu og látið sauminn snúa niður á bökunarpappírinn. Leyfið bollunum að hefast í aðrar 30 mínútur áður en bollurnar eru bakaðar við 220°C í 12-14 mínútur.
Látið bollurnar kólna á kæligrind og sigtið síðan flórsykur yfir bakaðar bollurnar.