GF Kanilsnúðar
Hveitibolla:
2 msk GF hveiti
3 msk vatn
3 msk mjólk
Deigið:
180 ml mjólk, volg
1 tsk sykur
2 tsk þurrger
450 g GF hveiti
65 g sykur
1 1/2 msk psyllium husk
1 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
60 g brætt smjör
1 egg
Fylling:
50 g smjör, brætt
2msk mjólk
50 g púðursykur
2 tsk kanill
Byrjið á að gera hveitijafning með því að hita innihaldsefnin í potti á meðan hrært er rösklega í blöndunni. Um leið og blandan byrjar að þykkna má slökkva undir pottinum og taka af hitanum.
Í lítilli skál má leysa upp gerið í volgri mjólkinni ásamt 1 tsk af sykrinum. Leyfið gerinu að freyða í 5 mínútur.
Í hrærivélarskálinni má blanda saman þurrefnum áður en gerblöndunni, hveitijafningnum og egginu er hnoðað saman við.
Fletjið deigið út á smurðan bökunarpappír eða smurða sílikonbökunarmottu. Deigið er klístrað svo best er að nota smurða sleikju til að dreifa úr deiginu. Reynið að ná deiginu upp í u.þ.b. 25x45 cm.
Blandið saman fyllingunni og dreifið úr henni yfir deigið.
Rúllið deigið upp frá langhliðinni til að mynda langa upprúllaða pylsu. Skerið rúlluna í 9 jafna hluta og leggið þá í bökunarform með skurðhliðina upp.
Setjið formið í kaldan ofninn og stillið á 100 °c. Leyfið snúðunum að hefast í 20 mínútur áður en ofninn er stilltur á 175°c.
Bakið í 30-40 mínútur.
Þegar snúðarnir hafa kólnað má setja glassúr eða rjómaostakrem yfir.