Heitur réttur með skinku
1 samlokubrauð
1 dós grænn aspas, geymið safann
1 bréf skinkukurl
1 rauð paprika, skorin smátt
100 g majónes
100 g rifinn ostur
2 egg
Skorpan er skorin af brauðinu og brauðið tætt niður í skál.
Sigtið aspasinn en geymið safann.
Setjið skinkukurl, 1/2 dl af soðnu úr aspasdósinni og aspasinn út í skálina ásamt papriku, majónesi og eggjunum.
Hrærið vel saman með sleif og bætið síðan 100 grömmum af rifna ostinum út í blönduna.
Setjið blönduna í ofnfat og stráið afgangnum af ostinum (50 g) yfir réttinn. Það er ekki verra að strá svolitlu season all kryddi yfir toppinn.
Bakið við 200°C í 30 mínútur eða þar til osturinn er rétt farinn að taka lit.