Hrekkjavökusaltstangir
Þessar eru ekki beint heppilegar sem veitingar fyrir krakkana en eru passlega ósmekklegar fyrir hrekkjavökupartýið fyrir þá fullorðnu.
Saltstangir
1 plata hvítt súkkulaði
2 msk hrásykur eða strásykur
rauður matarlitur
svartur matarlitur
Byrjið á að setja sykurinn í tvo litla poka og setjið dropa af rauðum matarlit í annan pokann og svartan matarlit í hinn. Veltið pokanum til og nuddið matarlitnum í sykurinn til að fá öskugráan sykur annars vegar og rauðan fyrir glóðina í hinum pokanum.
Bræðið súkkulaðið í glasi. Einfaldast er að setja glasið með súkkulaðinu í örbylgjuna og hita í 15 sekúndur í einu og hræra vel á milli þar til súkkulaðið er bráðið.
Dýfið saltstöngunum í hvítt súkkulaðið en skiljið eftir um 3 cm sem eiga að líta út eins og filter, það er gott að brjóta sumar stangirnar í tvennt til að fá stuttar stangir áður en þeim er dýft í sykurinn.
Dýfið endanum ýmist í rauðan, gráan eða báðar tegundir af sykri fyrir ösku og glóð og leggið síðan stangirnar á bökunarpappír til að láta súkkulaðið storkna.
Endið á að setja afganginn af gráa sykrinum á disk og raðið síðan saltstöngunum á diskinn.