Hrökkbrauð
100 g Hveiti t.d. gróft og hvítt saman
2 dl fræ (sólblómafræ, graskersfræ og sesamfræ) (110 g)
1/2 tsk Salt
tæpur dl heitt vatn
2 msk olía
Blanda fyrst þurrefnunum saman í skál.
Allt hnoðað saman og flatt út á bökunarpappir, gott að nota aðra örk af bökunarpappír ofan á deigið og fletja það út þannig með kökukefli þar sem deigið getur verið ansi klístrað.
Skera rákir í deigið svo hægt sé að brjóta það í smærri einingar eftir bakstur.
Bakað við 200 °C í 15 mínútur eða þar til það hefur tekið smá lit.