Jambalaya

Jambalaya

Kryddblandan:

1 msk paprika

4 tsk svartur pipar

2 tsk maldon salt

2 tsk hvítur pipar

2 tsk hvítlauksduft

2 tsk laukduft

1 tsk cayenne pipar

2-3 kjúklingalæri

2 msk olía

5 vínarpylsur

2 rif sellerí

1 laukur

1 græn paprika

3 lauf hvítlaukur

1 msk tómatpúrra

1 lárviðarlauf

1 tsk timjan

1 teningur kjúklingakraftur

300 g þurr hrísgrjón, skoluð

750 ml vatn

4-6 vorlaukar

Byrjið á að útbúa kryddblönduna og setjið til hliðar.

Skerið grænmetið smátt. Sneiðið pylsurnar í þunnar skífur og skerið kjúklingalærin í munnbitastærð.

Setjið 2 msk af kryddblöndunni út á kjúklinginn.

Hitið 1 msk af olíunni á pönnu og steikið kjúklinginn þar til hann hefur tekið smá lit en er ekki alveg steiktur í gegn. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið pylsurnar í pönnuna og steikið þar til þær hafa tekið smávegis lit. Takið pylsubitana af pönnunni og setjið í skálina með steiktum kjúklingnum. Bætið við olíu á pönnuna og setjið lauk, papriku og sellerí á pönnuna og steikið þar til það hefur náð að mýkjast aðeins. Bætið við hvítlauk, lárviðarlaufi, tómatpúrru og timían á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur til viðbótar. Setjið skoluð hrísgrjónin út á pönnuna ásamt 1-2 msk af kryddblöndunni, hrærið vel til að grjónin nái að hjúpast vel í kryddblöndunni. Setjið nú kjúklingabitana og pylsurnar aftur út á pönnuna. Hellið 750 ml af vatni yfir, myljið kjúklingateninginn yfir og hrærið vandlega. Náið upp suðu og látið síðan sjóða undir loki við vægan hita í 30 mínútur.

Slökkvið undir réttinum, setjið sneiddan vorlaukinn út í pottréttinn og hrærið upp í honum. Setjið lokið aftur á pönnuna og leyfið réttinum að standa í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram