Kjötbollur í brúnni

Kjötbollur í brúnni

250 g svínahakk

250 g nautahakk

2 dl mjólk

1 tsk salt

2 tsk laukduft

1 egg

5 msk kartöflumjöl

1/4 tsk pipar

1/2 tsk lyftiduft

Setjið hakkið,salt, laukduft og kartöflumjöl í hrærivelaskál. Notið "K" hrærara til að blanda saman deiginu.

Pískið eggið og setjið út í hrærivélaskálina ásamt lyftidufti og pipar. Blandið vel saman og setjið mjólkina samanvið í smáum skömmtum þar til úr verður slétt deig.

Sósan:

4 dl vatn

nokkrir dropar sósulitur

2-3 msk maizena mjöl og kalt vatn

1 teningur nautakraftur

svartur pipar eftir smekk

Hitið olíu á pönnu og steikið bollur úr kjötfarsinu.

Þegar bollurnar eru brúnaðar á öllum hliðum má setja vatnið út á pönnuna og mylja súputeninginn út í vökvann. Hitið að suðu og látið sjóða við vægan hita í nokkrar mínútur.

Þykkið með maizena mjöli sem hrært er út í köldu vatni.

Berið fram með soðnum kartöflum.