Kjúklingasamloka með sultuðum rauðlauk
4 sneiðar nýtt gott dökkt brauð
2 kjúklingabringur skornar í tvennt (þunnt)
steiktar með salti og pipar
1 avocado maukað með
smá sítrónusafi
salt og pipar
klettakál
Rauðlaukssulta:
1 Rauðlaukur
1 msk olía
2 tsk balsamedik
1 msk púðursykur
vatn eftir þörfum
1 msk furuhnetur til að toppa allt saman
Rauðlaukurinn er skorinn í tvennt og síðan í þunnar sneiðar. Mýktur í olíu og síðan er púðursykri og ediki bætt út á og látið þykkna aðeins.
Gott að gera open faced samloku eða smyrja báðar hliðarnar með avocado stöppunni.
Raðið klettakáli, steiktum kjúkling og toppið með rauðlaukssultunni og furuhnetum.
Ég hef líka notað snittubrauð og gert þetta að smáréttum í afmælisveislu.