Pekan Fudge

Pekan Fudge

180 g niðursoðin mjólk án sykurs (evaporated milk)

75 g smjör

75 g púðursykur

150 g sykur

klípa salt

1 tsk vanilludropar

50 g pekanhnetur

Byrjið á að hita niðursoðnu mjólkina, smjör, sykur og púðursykur í potti. Þegar blandan er búin að bráðna má setja smá klípu af salti í pottinn og halda áfram að sjóða blönduna við vægan hita. Hrærið stöðugt í pottinum á meðan blandan sýður.

Leyfið blöndunni að sjóða þar til hún hefur náð 114°C hita.

Takið pottinn af hitanum og hrærið aðeins áfram í pottinum á meðan blandan fer að kólna. Þegar blandan hefur kólnað niður í 110 °C má setja vanilludropana saman við og hræra vel.

Best er að nota rafmagnsþeytara til að hræra duglega í blöndunni. Takmarkið er að hræra í blöndunni þar til hún missir gljáann og fær matta áferð. Þetta tekur nokkrar mínútur. Þegar blandan er ekki lengur glansandi má hella henni yfir í lítið form með bökunarpappír. Ég nota 15 x 15 cm form. Stingið pekan hnetunum í toppinn á karamellunni og þrýstið svolítið ofan á.

Leyfið karamellunni að bíða í kæli í nokkrar klukkustundir til að hún nái að stífna. Skerið karamelluna í bita.