Ranch kjúklingur
Varúð: Fáránlega auðveld slowcooker uppskrift.
4 kjúklingabringur
400 g Philadelphia light rjómaostur
1 pakki hidden valley spicy ranch dressing mix eða 2-3 msk heimagerð blanda
Til að toppa herlegheitin þegar borið er fram:
Steikt beikon, skorið smátt.
Vorlaukur, sneiddur
Bringur eru settar í botninn á slow cooker, kryddblanda og rjómaostur settur ofan á og eldað í 3-4 klst á high eða 6-8 klst á low.
Að eldun lokinni er kjúklingurinn síðan tættur með gaffli í sundur og hrært saman við rjómaostablönduna í pottinum.
Þetta verður ekkert sérstaklega mikið fyrir augað, lítur út eins og kjúklingasalat en steiktu beikoni og vorlauk er skutlað yfir blönduna og þá er hægt að bera þetta fram.
Gott er að nota þetta sem fyllingu í samlokur, hamborgarabrauð, vefjur eða jafnvel í kálvefjur.