Salatostur með ólífum
200 g Góðostur
1 dl bragðmild ólífuolía
1 tsk milt chili krydd
nokkrar grænar ólífur
1/8 rauð paprika
1-2 lauf hvítlaukur, skorinn smátt
Setjið olíu, krydd, ólífur og papriku saman í krukku til að gera kryddolíu. Skerið ostinn í bita og setjið í kryddolíuna og geymið í kæli.
Leyfið ostabitunum að daga í sig bragðið úr kryddolíunni í a.m.k. sólarhing áður en osturinn er borinn fram. Geymist í 2 vikur í kæli.