Mjúkar taco skálar

Mjúkar taco skálar
(2)

Þessi er mjög krakkavæn og er hægt að bæta ýmsu við hana eins og piparosti og jalapeño eftir smekk hvers og eins.

250 g nautahakk

lítil dós maís

1/4 smátt sneidd paprika

krukka af salsasósu eða bolognese sósa

1 rifin gulrót

50 g ostur

4 hveiti tortillur skornar í fernt

jalapeño eða vorlaukur fyrir toppinn

Setjið hvern tortillakökuhluta í holu á muffins formi til að mynda einskonar skál eða hreiður fyrir hakkblönduna.

Steikið hakkið ásamt grænmetinu og sósunni. Mýkið grænmetið í sósunni og blandið að lokum maísbaununum saman við.

Setjið 1-2 kúfaðar matskeiðar af kjötblöndunni í hvert hreiður og dreifa smá osti yfir.

Baka í 5-10 mínútur við 200°C til að bræða ostinn.

Stráið sneiddum vorlauk eða jalapeño yfir toppinn ef vill.

Þetta er gott að bera fram með sýrðum rjóma og auka salsasósu.