Tottenham kaka

Tottenham kaka

Þessi kaka er þekkt í Englandi sem Tottenham cake en sagan segir að árið 1901 hafi svona kökur með bleikum glassúr verið bökuð og gefin börnum í tilefni sigurs fótboltaliðsins í Norður London. Burtséð frá fótbolta er kakan enn í dag vinsæl í Englandi og ekki að ástæðulausu.

150 g mjúkt smjör eða smjörlíki

150 g sykur

3 egg

150 g hveiti

1 tsk vanilludropar

1/2 tsl lyftiduft

1/4 tsk salt

Glassúr:

200 g flórsykur

nokkrir dropar rauður matarlitur

2-3 msk kalt vatn

1 msk kókosmjöl fyrir toppinn á kökunni

Forhitið ofninn í 180°C.

Byrjið á að vinna vel saman smjör og sykur. Bætið við eggjunum, einu í einu og þeytið vel á milli. Setjið vanilludropa, hveiti, salt og lyftiduft út í skálina og hrærið saman með sleif.

Setjið deigið í bökunarpappírsklætt form (ég notaði 21 x 21 cm form).

Bakið kökuna í 25-30 mínútur eða þar til prjónn sem stungið er í miðju kökunnar kemur hreinn út.

Látið kökuna kólna alveg áður en þykkum glassúr er smurt á kökuna.

Stráið kókosmjöli yfir kökuna.