Vatnsdeigsbollur

Vatnsdeigsbollur

125 ml vatn

50 g smjör

75 g hveiti, sigtað

2 egg

Byrjið á að forhita ofninn í 200°C.

Sigtið hveitið í skál.

Hitið saman vatn og smjör í potti til að bræða smjörið.

Sláið eggin vel í sundur með gaffli (í annarri skál).

Þegar suðan kemur upp má taka pottinn af hitanum og setja hveitið út í pottinn. Hrærið saman með sleif þar til kekkjalaust og deigið fer að sleppa köntunum á pottinum. Setjið eggið saman við í smáum skömmtum og hrærið vel í á milli.

Setjið deigið á bökunarpappír með skeið eða sprautið í toppa með sprautupoka.

Bakið í 10 mínútur og hækkið síðan hitann upp í 220°C og bakið í 15 mínútur til viðbótar.

Ekki opna ofninn fyrr en bollurnar eru gullbrúnar, annars er hætt við að þær falli.

Eftir baksturinn er hægt að bræða súkkulaði og setja ofan á bollurnar og setja sultu og rjóma á milli.