Trönuberja- og kalkúnasalat
100 g elduð kalkúnabringa
1 stilkur sellerí
2 vorlaukar
2 msk trönuber
4-6 msk majónes (má vera léttmajó)
10 stk pekanhnetur, saxaðar
örlítill svartur pipar
Byrjið á að skera sellerí, eldaða kalkúnabringu og vorlaukinn smátt. Saxið trönuberin og saxið pekanhneturnar gróft. Blandið öllu saman og hrærið majonesi saman við. Smakkið til með svörtum pipar.
Geymið í kæli.