GF súkkulaðiterta

GF súkkulaðiterta

2 lítil egg

120 g súrmjólk

80 ml nýmjólk

80 g brætt smjörlíki, kælt lítillega

1 tsk vanilludropar

170 g glútenlaust hveiti

100 g sykur

100 g púðursykur

3 msk bökunarkakó

1/2 tsk lyftiduft

1/2 tsk matarsódi

1/4 tsk salt

Þeytið saman egg, mjólk, súrmjólk og brætt kælt smjörlíki.

Setjið sykur og púðursykur út í skálina þeytið áðeins áfram. Sigtið önnur þurrefni saman við og blandið saman við með sleikju.

Setjið deigið í tvö hringlaga smurð form og bakið við 190 °C í 25-30 mínútur.

Látið kökubotnana kólna alveg áður en byrjað er að útbúa krem og súkkulaðibráð.

Vanillukrem:

350 g flórsykur

100 g smjörlíki

1 tsk vanilludropar

2-4 msk mjólk til að þynna kremið

Súkkulaðibráð:

1 dl rjómi

100 g suðusúkkulaði

1/2 tsk vanilludropar

1/2 msk smjörlíki

Byrjið á að hita rjómann á lágum hita í potti. Ekki hita alveg upp að suðu, bara þar til litlar loftbólur fara að myndast við kantinn. Takið þá af hitanum og brjótið suðusúkkulaðið út í heitan rjómann ásamt smjöri og vanilludropum. Leyfið þessu að standa í 2-3 mínútur á meðan súkkulaðið bráðnar. Hrærið síðan vel saman með sleikju þar til áferðin er gljáandi. Látið súkkulaðibráðina kólna í örfáar mínútur og hellið síðan yfir kökuna. Súkkulaðibráðin þykknar við að kólna svo best er að fylgjast vel með til að hafa rétta áferð þegar skreyta á kökuna með henni.

Hægt er að skreyta kökuna með nokkrum toppum af vanillukreminu og hindberjum ef vill.