Um mig

Um mig

Velkomin á uppskriftasíðuna mína.

Ég heiti Erla Steina og hef haldið úti þessari síðu í yfir 20 ár. Hér deili ég uppskriftum, hugmyndum og innblæstri úr eldhúsinu mínu.

Ég legg áherslu á að útbúa hollan og góðan mat sem allir í fjölskyldunni geta notið.

Ég hef einnig gefið út þrjár matreiðslubækur um matargerð í Air fryer, þar sem ég deili fjölbreyttum og einföldum hugmyndum að góðum mat.

Á síðunni finnur þú nýjar uppskriftir reglulega, ásamt ýmsum hugmyndum og góðum ráðum sem ég vona að nýtist þér í þínu eigin eldhúsi.

Takk fyrir að líta við, vonandi finnum við eitthvað gott til að elda saman.

Kær kveðja,

Erla Steina