Grísakótilettur í raspi með kartöflusalati
3-4 beinlausar grísakótilettur
1 egg
4 msk Panko brauðmylsna
20 g mulið cornflakes
1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk laukduft
1 tsk paprika
1/2 tsk salt
pipar eftir smekk
smávegis chiliduft
Snyrta grísakótiletturnar og slá saman egg í skál. Krydda kótiletturnar með salti og pipar. Blanda saman brauðmylsnu, kryddum og cornflakesmylsnu í annarri skál. Dýfa kótilettum upp úr eggi og síðan í raspblöndunni. Baka í 220°C heitum ofni í um 20 mínútur.
Kartöflusalatið er einfalt:
Soðnar kartöflur skornar í nokkra bita.
Sýrður rjómi og vel af grófkorna sinnepi sem er blandað saman við. Kartöflum bætt út í ásamt sneiddum vorlauk og salti og pipar eftir smekk.
Mér finnst ekki verra að kartöflurnar séu heitar í þessu kartöflusalati en það er líka í fínu lagi að þær séu kaldar.