Jólalegar Rice Krispies kökur
120 g suðusúkkulaði með myntubragði
60 g smjör
1 dl síróp
130 g Rice Krispies
Nokkrir piparmyntustafir til að skreyta kökurnar
Bræðið saman síróp og smjör í potti og bætið síðan súkkulaðinu út í pottinn. Hitið blönduna þar til hún fer að krauma.
Takið af hitanum og blandið Rice Krispies út í. Hrærið vel í með sleikju til að hjúpa allt morgunkornið í súkkulaðiblöndunni.
Setjið í muffinsform, brjótið hvern piparmyntustaf í tvennt til að stytta þá og stingið hálfum staf í hverja köku.