Persónuverndarstefna
Þessi stefna á við um vefinn uppskrift.is og Uppskrift-appið. Ábyrgðaraðili gagnanna er Erla Steinunn Árnadóttir. Fyrirspurnir og beiðnir um persónuupplýsingar sendist með fyrirspurnarforminu.
Heimsóknir á vefinn
Þegar þú skoðar vefinn skráum við IP-tölu, tíma, síðuna sem er skoðuð, hvaðan þú komst (tilvísun), vafra og stýrikerfi og tungumál vefsins. Sama á við þegar smellt er á tengil sem leiðir af vefnum. Þetta er notað til að reka vefinn, verjast misnotkun og sjálfvirkum vefsköfum (bottum) og til tölfræði um hvað er skoðað.
Full IP-tala er geymd í 30 daga. Eftir það er hún stytt (síðasti hluti hennar fjarlægður) svo hún vísar ekki lengur á einstakt tæki heldur á netkerfi, og þannig er skráningin geymd áfram í tölfræðiskyni. IP-tölur sem eru lokaðar vegna misnotkunar eru geymdar meðan lokunin varir.
Einkunnir og athugasemdir
Þegar þú gefur uppskrift einkunn eða skrifar athugasemd vistum við nafnið sem þú gefur upp, athugasemdina, einkunnina, tímann og IP-töluna (eða auðkenni appsins, sjá að neðan). Athugasemdir birtast á vefnum og í appinu eftir að þær hafa verið samþykktar. IP-talan er stytt eftir 30 daga eins og að ofan. Til að hver geti aðeins gefið eina einkunn fyrir hverja uppskrift geymum við auk þess fingrafar (lyklað tætigildi) af IP-tölunni sem ekki er hægt að snúa aftur í IP-töluna.
Fyrirspurnir
Þegar þú sendir fyrirspurn vistum við nafnið, netfangið og skilaboðin svo við getum svarað þér. IP-talan er ekki vistuð, aðeins fingrafar hennar til að takmarka hve mörg skilaboð má senda. Fyrirspurnum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf.
Vefkökur
Vefurinn notar aðeins nauðsynlegar vefkökur. Sjá yfirlit yfir vefkökur.
Appið
Þegar appið er sett upp býr það til handahófskennt auðkenni fyrir uppsetninguna. Það tengist hvorki nafni þínu né Google-reikningi. Með því sendir appið útgáfu sína, tegund símans og útgáfu stýrikerfisins. Við skráum beiðnir appsins (hvaða uppskriftir og flokkar eru skoðaðir) og notkun eins og eldunarham, deilingu, tengla og uppáhaldsuppskriftir, ásamt IP-tölu sem er stytt eftir 30 daga eins og að ofan.
Appið notar Play Integrity frá Google til að staðfesta að það sé ósvikið eintak úr Google Play. Tilkynningar um nýjar uppskriftir eru sendar með Firebase Cloud Messaging frá Google ef þú kveikir á þeim. Við fáum þá engar upplýsingar sem auðkenna þig og þú getur slökkt á þeim í valmynd appsins eða stillingum símans.
Mínar uppskriftir, nýlega skoðaðar uppskriftir og stillingar (t.d. ofnæmissía) eru aðeins geymdar í símanum.
Miðlun
Við seljum ekki persónuupplýsingar og notum hvorki auglýsinganet né vefgreiningu frá þriðja aðila. Upplýsingar fara aðeins til Google vegna Play Integrity og tilkynninga eins og lýst er að ofan.
Lagagrundvöllur og réttindi þín
Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum okkar af því að reka vefinn og appið á öruggan hátt, og á samþykki þínu þegar þú sendir einkunn, athugasemd eða fyrirspurn eða kveikir á tilkynningum. Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt og að andmæla vinnslu. Hafðu samband með fyrirspurnarforminu. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
Síðast uppfært 27. nóvember 2026.