Heill kjúklingur í air fryer
1 heill kjúklingur, lítill
Kjúklingakrydd:
1 tsk paprika
1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk laukduft
1/2 tsk timjan
1/4 tsk svartur pipar
1/2 tsk salt
klípa cayenne pipar
Kryddið kjúklinginn vel og leggið kjúklinginn í air fryer körfuna með bringuna niður.
Steikið kjúklinginn við 180°C í 30 mínútur og snúið þá kjúklingnum við.
Bakið kjúklinginn í 20-30 mínútur til viðbótar með bringuna upp.
Kjúklingurinn er fulleldaður þegar kjarnhitastigið nær 70°C.
Leyfið kjúklingnum að standa í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram.