Jólamuffins
50 g bráðið smjör
1 dl sykur
1 egg
1 dl mjólk
2 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
1/2 tsk engifer
1/2 tsk sítrónusafi
3 dl hveiti
2 msk saxað súkkulaði
2 msk söxuð trönuber
Þeytið saman egg, smjör og sykur.
Bætið við mjólk, þurrefnum og sítrónusafa og hrærið saman með sleif. Setjið að lokum súkkulaði og trönuber varlega saman við deigið og setjið í muffinsform með pappírsformum. Fyllið formin upp að 2/3.
Bakið við 180 °C í 10-15 mín.