Kartöflumús
500 g stórar kartöflur
2 msk smjör
50-100 ml mjólk
salt og pipar eftir smekk
1-2 stilkar vorlaukur
Fyrst þarf að flysja kartöflurnar og skera í svipað stóra bita.
Setjið kartöflubitana í pott með köldu vatni og sjóðið kartöflurnar þar til þær eru orðnar mjúkar í gegn.
Hellið vatninu af kartöflunum og setjið þær aftur í pottinn. Setjið smjörið út á heitar kartöflurnar og helminginn af mjólkinni og stappið kartöflurnar saman. Bætið við mjólk eftir þörfum að það þar til áferðin er mjúk og slétt. Kryddið til með svörtum pipar og salti. Stráið þunnt sneiddum vorlauk eða graslauk yfir kartöflumúsina áður en hún er borin fram.