Pylsubrauð með sesam

Pylsubrauð með sesam

150 ml undanrenna

1 msk olía

4 tsk sykur

2 tsk þurrger

225 g hveiti

1/2 tsk salt

1 egg og 1 msk mjólk

2-4 msk sesamfræ

Byrjið á því að leysa gerið og sykurinn upp í ylvolgri mjólk og leyfið gerblöndunni að standa í nokkrar mínútur til að blandan nái að freyða. Bætið við olíu, hveiti og salti og hnoðið vel saman.

Látið deigið hefast í klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð.

Skiptið deiginu í 6 hluta og rúllið hverjum hluta í lengjur að sömu lengd og vínarpylsur.

Leggið lengjurnar á bökunarpappírsklædda ofnplötu, penslið með eggjablöndu (egg slegið saman með 1 matskeið af mjólk) og stráið sesamfræjum yfir hvert pylsubrauð. Leyfið deiginu að hefast aftur í volgum ofni í 30 mínútur (ég stilli ofninn á 50°c).

Bakið brauðin að lokum við 200°c í 15-20 mínútur. Til að brauðin haldist mjúk er gott að vefja þau inn í hreint viskustykki á meðan þau eru enn heit.