Sultaðar gúrkur
4-6 smáar gúrkur
1/4 tsk salt
2 msk hrísgrjónaedik
1 msk soja sósa, saltminni
2 tsk sesamolía
1 tsk hlynsíróp
1 tsk ferskur rifinn engifer
1 lítið lauf hvítlaukur, rifið
Byrjið á að skera gúrkurnar í sneiðar og saltið þær. Lefið gúrkunum að standa í 10 mínútur til að saltið nái að draga aðeins úr vökvanum.
Í skál má blanda saman kryddlög úr hinum innihaldsefnunum.
Setjið gúrkurnar í kryddlögin (ekki skola saltið af þeim). Geymið í kæli 1-2 klst og berið fram samdægurs.