Bakaður satay kjúklingur með trönuberjum
6-8 kjúklingalæri
200 g hrísgrjón, t.d. Arborio
200 ml hvítvín
500 ml kjúklingasoð
salt og pipar eftir smekk
4 stk vorlaukar
4 lauf hvítlaukur
4 msk þurrkuð trönuber
Sósa:
1 msk hnetusmjör
3 msk soja sósa
2 msk msk hrísgrjónaedik
1 tsk púðursykur
1/2 tsk chiliflögur
1 tsk sesamolía
Skerið vorlaukinn í 1 cm bita og sneiðið hvítlaukinn í þunnar sneiðar.
Blandið inninhaldsefnum sósunnar í skál og setjið til hliðar.
Stillið ofninn í 190°C.
Á meðan ofninn hitnar má salta og pipra kjúklingalærin og steikja þau á pönnu.
Takið steiktu lærin af pönnunni og setjið á disk.
Bætið hvítlauk og vorlauk á pönnuna og steikið í 1 mínútu, bætið síðan þurrum hrísgrjónum út í og steikið aftur í 1 mínútu. Hellið hvítvíni á pönnuna og látið malla í 2 mínútur til viðbótar.
Bætið næst kjúklingasoði, sósu og trönuberjum út í. Hitið að suðu og hellið síðan grjónablöndunni í eldfast mót. Leggið elduð kjúklingalærin ofan á grjónin og setjið í ofninn.
Bakið við 190°C í 30 mínútur.